Skýringar
Götukort
FRAMVINDA
X
UM FRAMKVÆMD
X
Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holtvörðuheiðarlínu 3.
Meginmarkmið með byggingu raflínunnar er að auka afhendingaröryggi og afhendingargetu á landinu og tryggja að flutningskerfið standi ekki í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og eðlilegri þróun byggða á landinu. Lagning Holtavörðuheiðarlínu 3 er mikilvægur hlekkur í uppbyggingu byggðalínu og verður línan, 220 kV raflína, hluti af nýrri kynslóð byggðalínu. Línuleið hefur ekki verið valin en nokkrir valkostir hafa verið skoðaðir.
Gert er ráð fyrir að umhverfismatið taki um 2 ár. Ferlið byrjar á valkostagreiningu, þar sem valdir eru framkvæmdakostir sem fjallað verði um í umhverfismatsskýrslu. Því næst er útbúin matsáætlun (sem segir frá valkostum til skoðunar, rannsóknum sem nauðsynlegt er að vinna og samráði á vinnslutíma umhverfismats. Í kjölfar rannsókna verður skrifuð umhverfismatsskýrsla, sem fjallar um markmið framkvæmda, umfang framkvæmda, umhverfisáhrif valkosta, mótvægisaðgerðir og þann kost sem Landsnet leggur til.
Vegagerðin hefur lokið hönnun frumdragar að breikkun Vesturlandsvegar milli Hvalfjarðargangna og Borgarness, en í samgönguáætlun 2020 – 2034 er lögð áhersla á að aðskilja akstursstefnur frá höfuðborgarsvæðinu að Borgarnesi.
Hér má skilja eftir ábendingu sem fylgir frumdrögum inn í næstu stig hönnunar.